"To know what you know and know what you don't know is
the characteristic of one who knows"
-Confucius
Röntgen Domus
Röntgen Domus er staðsett að Egilsgötu 3, 101 í Reykjavík.
Gengið er inn frá Egilsgötunni en bílastæði eru framan og ofan við húsið. Auk þess eru bílastæði neðan við húsið en inná þau er ekið frá Snorrabraut. Til glöggvunar má nefna að á neðra bílaplaninu er ÓB bensínstöð og blasir hún við áður en beygt er inná planið.
Mælt er með að fara á vefsíðu Strætó bs
(www.bus.is)
ef nota á almenningsvagnakerfið til að komast á áfangastað (Egilsgata
3 / eða Þönglabakka 1-6).
Röntgen Domus rekur líka tölvusneiðmyndatæki og röntgentæki í Læknasetrinu, Þönglabakka 1 og 6, 109 Reykjavík.
Til að komast þangað er best að fara inn í verslunarmiðstöðina í Mjóddinni að austanverðu, þar nærri innganginum er stigahús með lyftu. Farið er upp á þriðju hæð og til vinstri þegar komið er út úr lyftunni. Tölvusneiðmyndir og röntgen eru þá fyrstu dyr til hægri handan við brúna. Ath. að alltaf þarf þó að koma við í afgreiðslunni fyrst sem staðsett er hægra megin við lyftuna.