Röntgen Domus



Ert þú barnshafandi? Getur það verið?
Ef svo er láttu okkur þá vita!


Skoðaðu heimasíðu Geislavarna ríkisins www.gr.is / Reglur um geislavarnir.

Vinnureglur vegna fósturvísis og fósturs:
Ef kona er yngri en 15 ára og eldri en 45 ára og ekkert bendir til þess að hún sé þunguð getur rannsókn farið fram á venjulegan hátt.

Ef kona er á barneignaaldri en rannsókn beinist ekki að kviðarholi og/eða mjaðmagrind má framkvæma rannsókn. Ef vitað er að kona er þunguð þarf að sýna sérstaka aðgæslu m.t.t. geislavarna.

Ef kona er á barneignaaldri og rannsókn beinist að kviðarholi og/eða mjaðmagrind skal ganga úr skugga um þungun.

Ef kona telur sig ekki vera þungaða getur rannsókn farið fram.

Ef óvissa er um þungun af einhverjum orsökum skal líta á viðkomandi konu sem þungaða.

Sérstakrar varúðar er þörf ef kona er á 8. - 15. viku meðgöngu vegna hugsanlegra áhrifa á miðtaugakerfi fósturs. Þá skal fresta rannsókn ef það er læknisfræðilega verjandi annars skulu kannaðir möguleikar á notkun áhættuminni rannsókna. Ef ekki er hægt að fresta rannsókn skal gera sérstakar ráðstafanir vegna geislavarna og takamarka eins og hægt er fjölda mynda og lengd skyggnitíma.

www.rd.is