Röntgen Domus



Röntgen Domus hóf rekstur röntgenstofu, tölvusneiðmyndatækis, ísótópastofu og ómsjár í október 1993. Stofnendur voru 5 röntgenlæknar sem höfðu unnið saman á St. Jósepsspítala á Landakoti. Helstu tildrög voru þau að yfir stóð sameining þáverandi Borgarspítala og Landakotsspítala og fannst stofnendum þar með skapast grundvöllur fyrir nýtt rekstrarform í myndgreiningu.

Læknarnir 5 voru í upphafi í hlutastarfi og réðu 3 geislafræðinga og einn læknaritara til starfa. Fljótlega fjölgaði í hópnum og ári seinna var opnuð önnur röntgenstofa. Stærsta framfaraskrefið var svo stigið með opnun segulómstofu 2. janúar 1996.

Röntgen Domus er leiðandi fyrirtæki á sviði myndgreiningar á Íslandi og hið langstærsta sinnar tegundar. Í dag eru eigendur 7 röntgenlæknar og hjá fyrirtækinu vinna 12 geislafræðingar og 17 aðrir starfsmenn.

Í tilefni 10 ára rekstrarafmælis fyrirtækisins var lögð sérstök áhersla á að bæta þjónustu við sjúklinga og er það gert með fjölgun tölvusneiðmyndatækja. Nú eru tvö slík tæki af fullkomnustu gerð í notkun. Annað tækið er í Mjódd en þar er 16 sneiða tæki og er það starfrækt þar í nánum tengslum við eina stærstu læknastöð landsins, Læknasetrið sf. Hitt er 64 sneiða tæki sem staðsett er í Domus Medica Egilsgötu. Með nýjum tækjum er unnt að bjóða fleiri gerðir rannsókna en áður s.s. kransæðamyndatökur án inngrips eins og hjartaþræðingar.

Til þess að unnt sé að efla starfsemina er nauðsynlegt að öll samskipti bæði hvað varðar myndir og myndaúrlestur, fari fram á stafrænu formi. Því hefur verið ráðist í gagngerar breytingar á vinnuumhverfi Röntgen Domus og er mikilvægasta skrefið tekið með endurnýjun á röntgenbúnaði fyrirtækisins en röntgenstofurnar eru fjölsóttastar og þar eru gerðar hátt í 100 rannsóknir á hverjum degi. Tækið sem þar er, er það fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Öll myndgerðin fer fram í tölvu og hvorki þarf að burðast með filmur, kassettur né myndplötur lengur.

Nýjustu framfaraskrefin voru svo tekin þegar segulómtækið var endurnýjað í janúar 2007 og þegar opnuð var ný röntgenstofa í Mjódd í september sama ár.

www.rd.is