Röntgen Domus



Tímabókanir: Missi ég tímann minn ef ég mæti of seint til rannsóknar?
Svar: Já með réttu gerir fólk það. Þó er alltaf reynt að komast hjá slíku og gerum við í Röntgen Domus allt sem í okkar valdi stendur til að greiða úr málum sem þessum. Slíkt er þó ekki alltaf hægt og þá verður fólk að fá bókaðan nýjan tíma og getur þá lent í því að bíða einhverja daga eða vikur eftir að fá rannsókn framkvæmda.

Hvers vegna þarf ég að bíða ef ég á bókaðan tíma?
Svar: Tímabókanir eru ein leið til að reyna að minnka biðtíma fólks. Þeir sem eiga bókaðan tíma eru látnir ganga fyrir eins og hægt er. Hafa ber þó í huga að við erum að vinna með fólk og því geta rannsóknir tekið mislangan tíma. Það verður því seint komist alveg hjá því að fólk lendi í því að bíða. Ath. þó að oftar en ekki ganga hlutirnir smurt og vel fyrir sig.

Er þetta hættulegt? Verð ég geislavirkur?
Svar:
Venjuleg röntgengeislun er ekki hættuleg ef notuð á réttan hátt og enginn verður geislavirkur. Eini staðurinn þar sem fólk verður geislavirkt er þegar farið er í svokallaðar ísótóparannsóknir. www.gr.is

Hvenær fæ ég að vita svarið?
Svar:
Venjan er sú að röntgenlæknar lesa úr myndunum samdægurs og niðurstöður fara svo póstleiðina til tilvísandi læknis strax daginn eftir.

Af hverju þarf ég að fara úr fötunum?
Svar:
Fyrir venjulegar röntgenrannsóknir þarf að afklæðast þ.s. föt geta skyggt á, gefið myndgalla og eyðilagt rannsóknina. Sama gildir um skart og aðra fylgihluti.

Þarf ekki að verja mig fyrir geislunum?
Svar:
Karlmenn geta fengið svokallað pungblý eða eins konar buddu sem sett er utanum punginn til að verja hann fyrir geislun. Erfiðara er að verja eggjastokka kvenna enda staðsetning þeirra ekki eins nákvæm og kynfæri karla. Geislavarnir felast í nákvæmum og réttum vinnubrögðum geislafræðingsins s.s. lágmarks stærð á geislafelti, stöðu fólks meðan myndað er og réttu vali á tökugildum.

Ath. þó að engin ástæða er til að verja kynkirtla ef geislafeltið er meira en 5 sm. frá kynkirtlum.

Má ég keyra eftir að hafa fengið skuggefni í æð?
Svar:


Hvað kostar að koma í rannsókn á myndgreiningadeild?
Svar:
Komugjald er misjafnt eftir rannsóknum. Tryggingastofnun ríkisins greiðir hluta af kostnaði við rannsókn. Hámarksgjald er sett á hverja komu og má fá upplýsingar um það hér á síðunni og inná heimasíðu TR. Ef viðkomandi er með örorku, elli eða afsláttarskírteini lækkar þetta gjald.
www.tr.is

Hvað á að gera við bleika afritið?
Svar:
Bleika afritið er kvittun sjúklings. Því ættu allir að halda til haga því þegar einstaklingur hefur greitt ákveðna hámarksupphæð fær hann afsláttarskírteini hjá Tryggingastofnun. Sérstakar reglur gilda um fólk með örorku, elli eða afsláttarskírteini. Nánari upplýsingar um þetta má finna á vefsíðu Tryggingastofnunar ríkisins. www.tr.is

www.rd.is