Röntgen Domus



Viðbrögð:
Þegar skuggaefni er gefið í æð er algengt að fólk finni fyrir hitastraumi alveg frá brjósti og alla leið niður í þvagblöðru og jafnvel svo að fólk hefur það á tilfinningunni að það sé að pissa. Auk þess finna margir fyrir málmbragði í munni. Þetta líður hratt hjá og telst til eðlilegra viðbragða.

Ofnæmi:
Ofnæmi fyrir ójónuðu vatnsleysanlegu joðskuggaefni er núorðið afar sjaldgæft. Þó koma alltaf upp stöku tilfelli þar sem um óþol er að ræða. Ef vitað er um skuggaefnisofnæmi ber að láta lækni eða geislafræðing vita fyrir rannsóknina. Í þeim tilvikum verður að framkvæma rannsóknina án skuggaefnisinndælingar.

Sykursýki:
Sé fólk með sykursýki og noti lyfið Glucophage, skal hætta inntöku lyfsins í a.m.k. 2 sólahringa í kjölfar skuggaefnisinndælingar og helst skyldi mæla kreatinin áður en Glucophage er tekið á ný. Ekki er talið æskilegt að blanda saman skuggaefni og Glucophage því þar getur átt sér stað ákveðin óæskileg samverkun. Nánar tiltekið: ef sjúklingur er á Glucophage og fær nýrnabilun eftir skuggaefnisgjöf getur concentration glucophage farid hættulega hátt og valdið lífshættulegri lactic acidosu.

Rannsóknir þar sem algengt er að sjúklingar fái skuggaefni eru:

  • Tölvusneiðmyndir af höfði, brjóstholi og kvið
  • Nýrnamyndatökur
  • Æðamyndatökur
www.rd.is