Engiferdrykkur
3 stangir sellerí
1 agúrka - flysja
engifer rót - góður biti
1 glas af vatni og meira ef vill.
Sett í blandara.
Sett á djúsbrúsa og geymt í ísskáp.
Drekka 1 glas á hverjum morgni og eitt um miðjan dag.
Hressir, bætir, kætir:)
Satay Kjúklingasalat
Kjúklingabringur
Thai Choice satay sósa
Dorritos osta snakk
Fetaostur í olíu
Iceberg
Spínat
Klettasalat
Gúrka
Litlir tómatar
Rauðlaukur
Paprika
Avakadó
Jarðaber |
Skerið kjúklinginn í bita og steikið á pönnu, þegar hann er tilbúinn hellið þá satay sósunni yfir kjötið og látið standa. Best er að leyfa þessu að verða kalt. (ca. ein dós satay á móti 4 beinlausum bringum)
Skerið grænmetið niður í skál.
Setjið kjúklinginn yfir salatið og blandið saman. Rétt áður en borðað er mulið Dorritos snakkið (ca.hálfur poki) og blandað við ásamt Fetaostinum án olíunar.
Njótið vel :)
Linda |
Klifurbrauð
1 poki ger (12 grömm) eða 50 grömm ferskt ger (einn pakki)
2 msk ljóst sýróp
7,5 - 8,0 dl volgt vatn
1 dl ólífuolía
Þessu er blandað saman við 1 kíló hveiti og 2 tsk salt.
Deigið á að vera eins þunnt og hafragrautur.
Látið deigið hefast í minnst eina klukkustund.
Hellt yfir í ofnskúffu (smurða), olíu dreypt yfir og hveiti sáldrað yfir.
Bakist við 250 gráður í 10 mínútur. Það sést vel hvort brauðið sé tilbúið eða ekki:-)
Maldon salti stráð yfir þegar brauðið er tekið út.
Borðist með mat (helst nýbakað), til dæmis súpu eða pottrétti. Vel hægt að setja í frysti og velgja það þegar það á að borðast.
Skonsur (Enskar)
7 dl. heilhveiti eða hveiti
1 tsk. salt
4 tsk. lyftiduft
100 gr. smjör
3 dl. súrmjólk
Smjörið mulið út í þurrefnin, síðan súrmjólkin sett út í og hnoðað fljótlega saman, rúllað í lengju og skorið niður í ca. 15 bita.
Sett á plötu og pennslað með mjólk og ef vill strá kanilsykri yfir.
Bakað í 10-15 mín. við 220°
Berið fram með hrísgrjónum og salati. Sýrður rjómi með graslauk og lauk er tilvalinn sem sósa.