Röntgen Domus


Aukin Þjónusta myndgreiningar í þágu sjúklinga

samningur samningur

Þann 10. nóvember 2009 var undirritaður samningur um aðgang heilbrigðisstarfsmanna að rafrænum sjúkragögnum milli Landspítala og Læknisfræðilegar myndgreiningar.

Um er að ræða söguleg tímamót  því þetta er fyrsti samningur sinnar tegundar. Með samningnum er komið á formlegri samvinnu sem gerir starfsmönnum myndgreiningadeildanna kleift að sækja rannsóknir í kerfi hvors annars hvenær sem á þarf að halda. Unnið hefur verið að því að koma þessu sambandi á í um það bil eitt ár en eftir að lög um sjúkraskrá tóku gildi síðasta vor varð það loks mögulegt.

Við erum ánægð með að geta nú boðið þessa bættu þjónustu til handa viðskiptavinum okkar og í sömu mund aukið skilvirkni og dregið úr kostnaði.

 Á myndunum eru talið frá vinstri: Pétur Hannesson og Torfi Magnússon fyrir hönd Landspítala og Birna Jónsdóttir og Ragnheiður Sigvaldadóttir fyrir hönd Læknisfræðilegrar myndgreiningar.



Samstarfssamningur THÍ og Röntgen Domus
08.nóvember 2003

Röntgen Domus undirritaði samstarfsamning við Tækniháskóla Íslands sem hefur það að markmiði að efla menntun geislafræðinema og gera hagnýtar rannsóknir á sviði myndgreiningar.

Það er mikið fagnaðarefni á þessum tímamótum að hafa treyst tengslin við skólann á þennan hátt og vonir standa til að samstarfið verði farsælt bæði nemendum og geislafræðingum.


Nýtt tölvusneiðmyndatæki í Mjódd
08.nóvember 2003

Að lokinni undirritun samstarfssamnings við THÍ var farið í Mjódd þar sem nýtt 16 sneiða tölvusneiðmyndatæki á vegum Röntgen Domus var nýkomið í hús. Einhverjir tæknilegir örðugleikar áttu sér stað þegar verið var að koma tækinu inn en Rafernir deyja ekki ráðalausir. Sigurður Rúnar, tæknimaður Rafarnarins ræsti út mannskap úr smiðju og lét smíða það sem til þurfti svo tækið stæði ekki úti. Það verður að segjast eins og er að Rafernir leysa málin.

Afmæli Röntgen Domus
16.október 2003

Afmæli Röntgen Domus var haldið með pomp og pragt þann 16. október. Starfsmenn sem og aðrir gestir mættu í sínu fínasta pússi, fögnuðu 10 ára afmælinu og þáðu léttar veitingar. Birna Jónsdóttir röntgenlæknir bauð nærstadda velkomna og sagði nokkur vel valin orð í tilefni dagsins. Fjallaði hún um nýju stafrænu röntgenstofuna sem í raun er afmælisgjöf fyrirtækisins til sín sjálfs og eitt stærsta skrefið til þessa í áttina að filmulausu umhverfi. Birna sýndi svo afmælisgestum forsmekkinn af því nýjasta sem boðið verður uppá hjá fyrirtækinu en nýtt fjölsneiða tölvusneiðmyndatæki af fullkomnustu gerð verður tekið í notkun í Læknasetrinu í Mjódd á allra næstu dögum. Þar mun aðaláherslan verða lögð á hjartarannsóknir.

Röntgen Domus hefur um nokkurt skeið unnið að gerð heimasíðu og var hún opnuð formlega á 10 ára afmælinu og þótti það vel við hæfi á þessum tímamótum og í takt við þá þróun sem er að eiga sér stað hjá fyrirtækinu.

www.rd.is