Röntgen Domus



Filmuvörður sími: 551-9338 - Myndaútlán (geisladiskar/filmur)
Ritari sími: 551-9335 - Svör


Filmuútlán:
Myndir eru sendar þeim læknum og sjúkrastofnunum sem þær panta. Læknar þurfa að gefa upp læknanúmer svo myndir verði afgreiddar. Ef fólk vill sjálft sækja sínar myndir verður það að sýna persónuskilríki að öðrum kosti verða þær ekki afhentar. Aðrir fá ekki afhentar myndir nema gegn skriflegu umboði og verða þá sömuleiðis að sýna skilríki.

Ath. að nú orðið eru myndir ekki settar á filmu. Myndir er hægt að fá á geisladiskum með lítilli fyrirhöfn fyrir PC tölvur.
Þeir sem nota Macintosh tölvur verða að nota önnur Dicom Viewer forrit t.d. Osirix. Diskurinn kostar 500,- kr.

Filmuvarsla:
Allar myndir eru geymdar í filmuvörslu Röntgen Domus og samkvæmt lögum er skylda að varðveita filmur í 10 ár hið minnsta. Myndir teknar frá og með seinni hluta árs 2003 eru geymdar á stafrænu formi.
Þeir læknar sem eru tengdir Röntgen Domus rafrænt geta nálgast myndir og niðurstöður samdægurs.

Svör:
Niðurstöður rannsókna liggja að jafnaði fyrir samdægurs og aldrei síðar en daginn eftir að rannsókn er lokið. Þá eru þær sendar tilvísandi læknum í pósti og ættu því að vera komnar til þeirra innan eins til tveggja sólahringa.
Þeir læknar sem eru með rafræna tengingu við Rönten Domus fá svörin samdægurs.

Boðið er upp á úrlestur mynda sem teknar hafa verið annars staðar en í Röntgen Domus;
Úrlestur tölvusneiðmynda kostar 5000,- kr
Úrlestur röntgenmynda kostar 3000,- kr
Þýðing á svörum yfir á ensku kostar 2000,- kr

Skriflegum gögnum s.s. rannsóknabeiðnum og svörum má samkvæmt lögum ekki henda. Niðurstöður rannsókna fást lesnar upp fyrir tilvísandi lækna í síma að því tilskyldu að læknar gefi upp læknanúmer. Ritarar sjá um að lesa upp svör í síma 551-9335.

Bráðasvör:
Bráðasvar getur fólk fengið með sér að myndatöku lokinni sé þess óskað af tilvísandi lækni og getið á beiðni.

Röntgenlæknar veita tilvísandi læknum bráðasvör í síma 551-9330.

www.rd.is