Röntgen Domus



Tækjakostur:

Röntgen Domus Medica er með tvö tölvusneiðmyndatæki af gerðinni Toshiba.. Bæði tækin eru fjölsneiða, annað tækið tekur16 sneiðar samtímis en hitt 64
.

Tækni:

Með tilkomu fjölsneiðatækjanna er hægt að vinna myndir í öllum plönum þ.e. tækið hefur fullnægjandi upplýsingar í þrívíðu plani. Þessi fullkomnu tæki gefa einnig möguleika á æðarannsóknum og sýndarspeglunum.

Tölvusneiðmyndatæknin byggir á því að hárfínn röntgengeisli er sendur í gegnum sjúklinginn. Röð skynjara breytir röntgengeislum í ljós sem síðan er breytt í rafboð með ljósnæmum hálfleiðara.

Kostir TS:

  • Fljótleg
  • Aðgengileg
  • Sýnir nýlega blæðingu og kalk vel
  • Auðvelt að nálgast fólk í tækinu
  • Hættulaus

Gallar TS:

  • Notast er við röntgengeislun.
  • Málmar s.s. æðaklemmur, gerfiliðir og fl. gefa ljóta myndgalla.
www.rd.is