Röntgen Domus



Tækjakostur:
Röntgen Domus Medica er með segulómtæki af gerðinni Philips. Tækið er 1.5 Tesla og þvermál gantrys er 60 cm. Einnig er í notkun Artoscan, lítið 0,2 Tesla tæki ætlað sérstaklega til að mynda útlimi.

Tækni:
Skammstöfunin MRI stendur fyrir Magnetic Reconance Imaging sem í íslenskri þýðingu nefnist segulómun.

Segulómun er nákvæm rannsóknaraðferð sem vel hefur sannað gildi sitt í læknifræðilegri myndgreiningu. Notast er við sterkt segulsvið, útvarpsbylgjur og loftnet. Útvarpsbylgjur með ákveðna tíðni og ákveðinn styrk eru sendar inn í líkamann. Líkaminn útvarpar þá nýjum bylgjum með sömu tíðni en mismunandi styrk frá mismunandi líkamsvef. Loftnet sem umlykur sjúklinginn móttekur þessar útsendingar og með aðstoð tölvu má kortleggja líkamann.

Rannsókn af þessu tagi er sársaukalaus og hefur þann kost að ekki er þörf á jónandi geislun af neinu tagi. Útkoman er mjög nákvæmar myndir af bólgubreytingum, æðasjúkdómum, slitbreytingum og æxlisvexti svo dæmi séu tekin. Þessi tækni hentar einkar vel við myndatökur af heila og taugakerfi, auk þess sem gott er að skoða sjúkleika í liðum og stoðkerfi líkamans.

Aukaverkanir?
Nei en þó ekki séu þekktar neinar aukaverkanir er reynt að komast hjá því að mynda konur á fyrstu 3 mánuðum meðgöngu. Nauðsynlegt er að láta vita ef um mögulega þungun er að ræða.

Eftir myndatökuna:
Engar aukaverkanir fylgja og því getur þú farið beint heim eða til vinnu eftir rannsóknina. Myndirnar eru skoðaðar samdægurs af röntgenlækni og niðurstöður eru að jafnaði komnar innan 2ja - 3ja daga.

Starfsfólkið:
Geislafræðingar framkvæma rannsóknina og eru þeir sérþjálfaðir til að stjórna segulómtæki. Vel er fylgst með þér í myndatökunni bæði með kallkerfi og myndavél.

Röntgenlæknir, sérhæfður í geislagreiningu, les úr myndunum og aðstoðar þannig lækna við greiningu og mat á niðurstöðum.

Rannsóknardagur:
Enginn sérstakur undirbúningur er nauðsynlegur fyrir segulómun fyrr en mætt er til myndatöku. Því er mikilvægt að þú mætir stundvíslega.

Beiðni fyrir rannsókn skal afhenda í afgreiðslu, um leið og tímapöntun er gerð.

Starfsfólk útskýrir framgang rannsóknarinnar jafnóðum og svarar gjarnan spurningum sem upp kunna að koma. Sökum þess hve sterkt segulsvið er í tækinu er nauðsynlegt að fjarlægja alla lausa málmhluti svo sem úr, lykla, keðjur, hárnálar og greiðslukort. Fólk er beðið að fara úr sínum fötum og í slopp. Við myndatökur er ekki æskilegt að vera með andlitsfarða, í honum eru málmagnir sem setjast innaná tækið og gefa myndgalla.

Starfsfólk kemur þér fyrir á rannsóknarbekknum. Þar til gert loftnet er látið umlykja þann líkamshluta sem rannsaka á og bekknum er rennt inn í segulómsjánna.

Meðan á myndatöku stendur gefur tækið frá sér síendurtekna smelli eða bankhljóð. Teknar eru nokkrar myndraðir og á meðan er nauðsynlegt að þú liggir alveg kyrr. Reikna skal með að rannsóknin taki um 1/2 - 1 klst.

Sársauki/skaðsemi:
Myndatakan hefur engin skaðleg áhrif. Vegna hávaðans er sjúklingi boðið upp á tónlist eða eyrnatappa og getur fólk komið með sinn uppáhalds geisladisk með sér.

Ekki eru notaðir röntgengeislar og segulsviðið er talið meinlaust. Þó skulu gerðar nokkrar varúðarráðstafanir.

Nauðsynlegt er að láta starfsfólk vita hafir þú:

  • hjartagangráð
  • farið í aðgerð vegna æðagúls (æðaklemmur).
  • farið í aðgerð á heila, mænu eða hrygg.
  • farið í aðgerð þar sem settir hafa verið í þig málmhlutir af einhverju tagi, svo sem gerfiliður.
  • fengið málmflís í auga eða annarsstaðar í líkamann.

    Kostir:
    Mjög næmt fyrir sjúklegum breytingum.

    Gallar:
  • Ekki aðgengilegt
  • Erfitt að nálgast fólk á meðan á rannsókn stendur
  • Ekki ætlað fólki sem eru með hjartagangráð, insúlíndælu og ígrædd heyrnartæki.
  • Ekki ætlað fólki sem nýlega hefur fengið fóðringu (stent) í æð vegna æðaþrengsla.
  • Ekki ætlað fólki sem eru með æðagúlsklemmur og hjartalokur af eldri gerð.
  • Ekki ætlað fólki sem eru með málmflís í sér.
  • Ekki ætlað fóki sem hefur gengist undir aðgerð á miðeyra og fengið gerfi ístað.
www.rd.is