
- 24
klst. úthreinsun. Sjá nánari leiðbeiningar
um úthreinsun.
- Fólk þarf að fara úr öllu og
fær
slopp til að vera í meðan á rannsókn
stendur.
Þungun.
Mikilvægt er að fylgja leiðbeiningum um úthreinsun
í hvívetna. Einungis skal nota þau efni sem Röntgen
Domus ákveður hverju sinni og taka þau á tímanum
sem gefinn er upp nema læknirinn hafi tekið annað fram.
Með því að fylgja leiðbeiningunum næst
bestur árangur og komið er í veg
fyrir að endurtaka
þurfi meðferðina.
Að svörun einstaklinga við hægðalosandi
efnum er mismunandi og ráðlegt er að halda sig í
nánd við salerni eftir að úthreinsunin
er hafin.
Það er nauðsynlegt að drekka mikinn
vökva. Drekktu a.m.k. eitt glas af vatni (250 ml.) á þeim
tímum sem gefnir eru upp. Ekki má drekka mjólk,
rjóma eða gervirjóma.
24
klst úthreinsun: Dagur fyrir rannsókn (merktu
við það sem er búið jafnóðum)
Morgun:
Glært kjötseyði, ávaxtasafar
án aldinkjöts, gosdrykkir, svart kaffi eða
mjólkurlaust
te.
Hádegi:
Glært kjötseyði, ávaxtasafar
án aldinkjöts, gosdrykkir, svart kaffi eða
mjólkurlaust
te.
- Kl.
13:00 Eitt fullt glas af vatni (250 ml.)
- Kl.
14:00 Eitt fullt glas af vatni (250 ml.)
- Kl.
15:00 Eitt fullt glas af vatni (250 ml.)
- Kl.
16:00 Eitt fullt glas af vatni (250 ml.)
- Kl.
17:00 Glært kjötseyði, ávaxtasafar án
aldinkjöts, gosdrykkir, svart kaffi eða mjólkurlaust
te.
- Kl.
17:30 Taktu ílát sem tekur a.m.k. 500 ml. af
vökva.
Helltu fyrst 250 ml. af köldu vatni íílátið
og hrærðu svo varlega innihaldi pokans með ”Magnesium
carbonate”, ”Citric Acid” og ”Potassium
Citrate”
í vatnið. Hrærðu varlega eftir að það
hættir að freyða og drekktu alla blönduna. Þetta
veldur yfirleitt hægðum eftir ½ til
6 klst.
- Kl.
18:00 Eitt fullt glas af vatni (250 ml.)
- Kl.
19:00 Eitt fullt glas af vatni (250 ml.)
- Kl.
19:30 Rífðu upp bakhlið töflupakkans
og taktu töflurnar 4 úr. Taktu þær
allar með einu
fulluglasi
af vatni (250 ml.). Ekki má tyggja töflurnar!
Þær á að taka tveimur klukkustundum
eftir að
”Magnesium carbonate” ”Citric Acid” og ”Potassium
Citrate” blandan hefur verið drukkin. Yfirleitt
valda töflurnar
hægðum
eftir
6-12
klst.
- Kl.
20:00 Eitt fullt glas af vatni (250 ml.)
- Kl.
21:00 Eitt fullt glas af vatni (250 ml.)
Taktu
meðfylgjandi endaþarmsstíl a.m.k. tveimur
klukkustundum
áður en þú átt að mæta í
rannsókn.
Leggstu á hlið og
lyftu lærinu. Ýttu stílnum
varlega inn í endaþarminn eins langt og mögulegt
er.
Reyndu
til hins ýtrasta að halda í þér
í a.m.k. 15 mínútur. Þarmatæming
verður
venjulega eftir 15 – 60 mínútur.
Rannsóknin tekur um 30 mínútur.
- Fólk
leggst á vinstri hlið og dregur að sér
hnén.
- Geislafræðingur
setur upp staut í endaþarm
(stólpípu) og þarf að reyna að halda
honum inni meðan á rannsókn
stendur.
- Röntgenlæknir
framkvæmir rannsóknina
og lætur
renna inn bariumblöndu í gegnum stólpípuna.
- Um
leið þarf fólk að velta sér í
hringi á rannsóknabekknum og þannig myndar
bariumblandan
þekju innaná ristilveggnum og gerir mögulegt
að
skoða hann með röntgengeislum.
- Þegar
komin er góð þekja innaná ristilinn
er allt sem er umfram af bariumblöndunni látið renna
sömuleið til baka gegnum slönguna og lofti
dælt
inní ristilinn.
- Í stöku
tilfellum fær fólk lyf (Buscopan)
til að slaka á ristlinum áður en loftinu
er dælt
inn.
Fólk liggur á rannsóknabekk og þarf
að
velta sér fram og til baka ýmist á bakið,
magann eða uppá hliðarnar meðan á myndatöku
stendur.
Notast
er
við röntgengeislun og ristillinn er skoðaður
í gegnumlýsingu meðan á rannsókn
stendur. Teknar eru margar myndir bæði í liggjandi
og standandi stöðu.
Hafi
fólk gláku ætti það að láta
vita áður en rannsókn
hefst.
Viðbrögð við bariumskuggaefni
eru óþekkt
en mikilvægt er að drekka vel af vökva til
að koma
í veg fyrir hægðatregðu.
Fólki
er óhætt að borða eins og það
sjálft treystir sér til að rannsókn
lokinni.
Fólki
er óhætt að aka að rannsókn
lokinni.
Blývörn er áföst við tækið og
ver þannig viðkvæm svæði s.s. kynkirtla bæði
karla og kvenna. Geislavarnir felast í nákvæmum
og réttum vinnubrögðum geislafræðingsins og
röntgenlæknisins s.s. lágmarks stærð á
geislafelti, stöðu fólks meðan myndað er og
réttu vali á tökugildum.
Forðast skal að mynda barnshafandi konur nema brýna nauðsyn
beri til. Velja skal hættuminni rannsókn ef kostur er á
slíku.
www.rd.is