Röntgen Domus



Röntgenrannsóknir: Phlepographia


Undirbúningur:

Enginn en fara þarf úr síðbuxum og sokkum meðan á rannsókn stendur og fær fólk slopp ef þess er óskað.
Þeir sem taka sykursýkislyfið Glucophage þurfa að hætta því í 48 klst. í kjölfar skuggaefnisinndælingar.

Frábendingar:
Þungun og ofnæmi fyrir skuggaefni.

Tími:
Rannsóknin tekur um ½ klst.

Framkvæmd:

  • Fólk stendur/liggur og stígur á upphækkun með heilbrigða fætinum svo sá veiki liggi laus.
  • Nál er komið fyrir í æð framanvert á rist veika fótarins.
  • Settur er stasi (teyja) utanum ökklann og skuggaefni dælt inn í bláæðakerfið.
  • Teknar eru myndir af fætinum á meðan skuggaefninu er dælt inn.

Myndataka:
Notast er við röntgengeisla og fylgst með æðakerfinu fylla sig af skuggaefni í skyggningu. Teknar eru myndir frá rist/ökkla og alla leið uppí nára um leið og æðakerfið fyllist af skuggaefni.

Aðrar upplýsingar:

Blývörn er áföst við tækið og ver þannig viðkvæm svæði s.s. kynkirtla bæði karla og kvenna. Geislavarnir felast í nákvæmum og réttum vinnubrögðum geislafræðingsins og röntgenlæknisins s.s. lágmarks stærð á geislafelti, stöðu fólks meðan myndað er og réttu vali á tökugildum.

Forðast skal að mynda barnshafandi konur nema brýna nauðsyn beri til. Velja skal hættuminni rannsókn ef kostur er á slíku.

www.rd.is