
- Drekka vel daginn fyrir rannsókn.
- Fólk þarf
að afklæðast öllu
nema nærbuxum og fær slopp eða bol til að vera í
meðan á rannsókn stendur.
- Þeir sem taka sykursýkislyfið
Glucophage þurfa að hætta því í 48 klst. í kjölfar skuggaefnisinndælingar.
Þungun og ofnæmi fyrir skuggaefni.
Rannsóknin tekur um 1 klst.
Mikilvægt er að þvagblaðran sé tóm
þegar rannsókn hefst.
- Fólk pissar.
Teknar eru yfirlitsmyndir af nýrum, þvagleiðurum og
þvagblöðru.
- Skuggaefni
er sprautað í bláæð í
handlegg og skilst það út í gegnum nýrun.
- Myndir
eru teknar af nýrunum á meðan efnið er
að skiljast út.
- Í lokin getur þurft að láta fólk tæma
þvagblöðruna aftur og taka svo mynd af henni tómri.
Legið er á bakinu stóran hluta rannsóknarinnar
og þarf fólk ekki að hreyfa sig mikið. Þó
eru teknar skámyndir af nýrunum og þá þarf
fólk að velta sér hálfa leið upp á
hvora hlið. Undir lok rannsóknar þarf að taka eina
mynd þar sem fólk liggur á maganum.
Teknar eru 11 myndir en stundum geta þær orðið fleiri.
Karlmenn geta hér fengið svokallað pungblý eða
eins konar buddu sem sett er utanum punginn til að verja hann fyrir
geislun. Erfiðara er að verja eggjastokka kvenna enda staðsetning
þeirra ekki eins nákvæm og kynfæri karla. Geislavarnir
felast í nákvæmum og réttum vinnubrögðum
geislafræðingsins s.s. lágmarks stærð á
geislafelti, stöðu fólks meðan myndað er og
réttu vali á tökugildum. Gott er að verja brjóst
kvenna með blýsvuntu þegar við á.
Forðast skyldi að mynda barnshafandi konur nema brýna
nauðsyn beri til. Velja skal hættuminni rannsókn ef
kostur er á slíku.
Þessi rannsókn er líka kölluð IVP, IVU eða Urografía.
www.rd.is