Röntgen Domus



Röntgenrannsóknir: MUCG

Undirbúningur:
Enginn en fólk þarf að fara úr öllu og fær slopp eða bol til að vera í meðan á rannsókn stendur.

Frábendingar:
Þungun.

Tími:
Rannsóknin tekur á bilinu 20-40 mínútur.

Framkvæmd:
Legið er á bakinu stóran hluta rannsóknarinnar og þarf fólk ekki að hreyfa sig mikið.

  • Teknar eru yfirlitsmyndir
  • Síðan er fólki þvegið að neðan með sótthreinsandi vökva
  • Þræddur er upp þvagleggur og inn um hann er látið renna skuggaefni.
  • þegar blaðran er full eru teknar nokkrar myndir.
  • Fólk pissar og reynt er að taka mynd af þvagfærunum um leið.

Myndataka:
Teknar eru 1-2 yfirlitsmyndir áður en skuggaefni er látið renna inní þvagblöðruna.
Eftir að skuggaefnið er komið inn eru teknar á bilinu 4-6 myndir. Að lokum er tekin ein mynd um leið og fólk pissar og mynd í lokin af þvagblöðrunni tómri.

Aðrar upplýsingar:
Karlmenn geta hér fengið svokallað pungblý eða eins konar buddu sem sett er utanum punginn til að verja hann fyrir geislun. Erfiðara er að verja eggjastokka kvenna enda staðsetning þeirra ekki eins nákvæm og kynfæri karla. Geislavarnir felast í nákvæmum og réttum vinnubrögðum geislafræðingsins s.s. lágmarks stærð á geislafelti, stöðu fólks meðan myndað er og réttu vali á tökugildum. Gott er að verja brjóst kvenna með blýsvuntu.

Forðast skyldi að mynda barnshafandi konur nema brýna nauðsyn beri til. Velja skal hættuminni rannsókn ef kostur er á slíku.

Athugið að sem stendur er ekki gert ísótópa MUCG á Röntgen Domus.

www.rd.is