
Fasta frá miðnætti.
Fólk þarf að fara úr öllu nema nærbuxum
og fær slopp til að vera í meðan á rannsókn
stendur.
Þungun.
Rannsóknin tekur mjög mislangan tíma en vert er að
gefa sér góðan tíma í þetta.
- Fólk fær bariumblöndu sem það drekkur.
- Teknar
eru myndir með reglulegu millibili til að fylgjast með
blöndunni ferðast gegnum mjógirnið.
- Fólk ýmist stendur eða liggur útaf meðan
á rannsókn stendur og þarf að snúa sér
eftir beiðni læknis.
Teknar eru allmargar myndir. Notast er við röntgengeisla og
mjógirnið skoðað í gegnumlýsingu.
Blývörn er áföst við tækið og
ver þannig viðkvæm svæði s.s. kynkirtla
bæði
karla og kvenna. Geislavarnir felast í nákvæmum
og réttum vinnubrögðum geislafræðingsins
og röntgenlæknisins s.s. lágmarks stærð á
geislafelti, stöðu fólks meðan myndað er og
réttu vali á tökugildum.
Forðast skal að mynda barnshafandi konur nema brýna nauðsyn
beri til. Velja skal hættuminni rannsókn ef kostur er á
slíku.
Viðbrögð
við bariumskuggaefni eru óþekkt en að rannsókn
lokinni er mikilvægt að drekka vel af vökva til að
koma í veg fyrir hægðatregðu.
www.rd.is