
Enginn.
Þungun.
Fjarlægja þarf allt sem skyggt getur á veika svæðið
áður en myndað er.
- Fólk liggur á rannsóknabekk
.
- Veiki
fóturinn liggur beinn en sjúklingur gerir sig vel
innskeifan (snýr fæti alveg frá nára).
- Geislafræðingur beinir röntgentæki að fætinum
og afmarkar hæfilegt geislasvið.
- Sjúklingur beygir hné og leggur fótinn út
til hliðar.
Teknar eru að minnsta kosti 2 myndir og oft
fleiri.
Karlmenn geta hér fengið svokallað pungblý eða
eins konar buddu sem sett er utanum punginn til að verja hann fyrir
geislun. Erfiðara er að verja eggjastokka kvenna enda staðsetning
þeirra ekki eins nákvæm og kynfæri karla. Geislavarnir
felast í nákvæmum og réttum vinnubrögðum
geislafræðingsins s.s. lágmarks stærð á
geislafelti, stöðu fólks meðan myndað er og
réttu vali á tökugildum.
Forðast skyldi að mynda barnshafandi konur nem brýna
nauðsyn beri til. Velja skal hættuminni rannsókn ef
kostur er á slíku.
www.rd.is