Röntgen Domus



Röntgenrannsóknir: Mjaðmagrind


U
ndirbúningur:
Enginn.

Frábendingar:
Þungun.

Til athugunar:
Fjarlægja þarf allt sem skyggt getur á veika svæðið áður en myndað er.

Framkvæmd:

  • Fólk liggur á rannsóknabekk.
  • Sjúklingur gerir sig vel innskeifan á báðum fótum (snýr fótum alveg frá nára).
  • Geislafræðingur beinir röntgentæki að mjaðmagrind og afmarkar hæfilegt geislasvið.
  • Sjúklingur beygir hnén og leggur fætur út til hliðanna.

Myndataka:
Tekin er að minnsta kosti ein mynd og stundum fleiri.

Aðrar upplýsingar:
Karlmenn geta hér fengið svokallað pungblý eða eins konar buddu sem sett er utanum punginn til að verja hann fyrir geislun. Erfiðara er að verja eggjastokka kvenna enda staðsetning þeirra ekki eins nákvæm og kynfæri karla. Geislavarnir felast í nákvæmum og réttum vinnubrögðum geislafræðingsins s.s. lágmarks stærð á geislafelti, stöðu fólks meðan myndað er og réttu vali á tökugildum.

Forðast skyldi að mynda barnshafandi konur nem brýna nauðsyn beri til. Velja skal hættuminni rannsókn ef kostur er á slíku.

www.rd.is