Fasta frá miðnætti.
Með föstu er átt við mat, drykki, tyggjó og
reykingar.
Fólk þarf að fara alveg úr að ofan og fær
slopp eða bol til að vera í meðan á rannsókn
stendur.
Þungun.
Rannsóknin tekur um 30 mínútur.
Teknar
eru
allmargar
myndir.
Notast
er
við röntgengeisla og
maginn skoðaður í gegnumlýsingu.
Fólk situr upprétt og gleypir duft sem myndar loft í
maganum. Eftir það er mikilvægt að passa vel að ropa
ekki.
Í framhaldinu er fólk látið drekka bariumblöndu
sem mynda á þekju innan á maganum svo hægt
sé að sjá hann á röntgenmynd.
Fólk ýmist stendur eða liggur útaf meðan
á rannsókn stendur og þarf að snúa sér
eftir beiðni læknis. Fólk liggur/stendur því
ýmist á baki, maga eða hlið allt eftir þörfum.
Blývörn er áföst við tækið og
ver þannig viðkvæm svæði s.s. kynkirtla bæði
karla og kvenna. Geislavarnir felast í nákvæmum
og réttum vinnubrögðum geislafræðingsins og
röntgenlæknisins s.s. lágmarks stærð á
geislafelti, stöðu fólks meðan myndað er og
réttu vali á tökugildum.
Forðast skal að mynda barnshafandi konur nema brýna nauðsyn
beri til. Velja skal hættuminni rannsókn ef kostur er á
slíku.
Viðbrögð við bariumskuggaefni eru óþekkt
en að rannsókn lokinni er mikilvægt að drekka vel
af vökva til að koma í veg fyrir hægðatregðu.
www.rd.is