Röntgen Domus



Röntgenrannsóknir: Hjarta og lungu


Undirbúningur:

Enginn
.

Frábendingar:
Þungun.

Til athugunar:
Fjarlægja þarf allt sem skyggt getur á veika svæðið áður en myndað er.

Framkvæmd:

  • Fólk situr eða stendur með brjóstið að plötu.
  • Filman er sett í skúffu bakvið plötuna.
  • Fólk þarf að draga vel inn andann og halda andanum (innöndun) meðan mynd er tekin. Í stöku tilfellum þarf fólk að blása vel frá sér og stoppa öndun meðan mynd er tekin (útöndun).

Myndataka:
Teknar eru 2 myndir. Stundum þarf að taka fleiri. Ef ástand fólks er þannig að það þarf að mynda útafliggjandi er oft reynt að komast af með eina mynd.

Aðrar upplýsingar:
Geislavarnir felast í nákvæmum og réttum vinnubrögðum geislafræðingsins s.s. lágmarks stærð á geislafelti, stöðu fólks meðan myndað er og réttu vali á tökugildum.

Börn skulu fá blývörn verði því við komið.

Forðast skyldi að mynda barnshafandi konur nema brýna nauðsyn beri til. Velja skal hættuminni rannsókn ef kostur er á slíku.

www.rd.is