Röntgen Domus



Röntgenrannsóknir: Lendhryggur


Undirbúningur:

Enginn en fólk þarf að afklæðast öllu nema nærbuxum og fær slopp eða bol til að vera í meðan á rannsókn stendur.

Frábendingar:
Þungun..

Til athugunar:
Fjarlægja þarf allt sem skyggt getur á veika svæðið áður en myndað er.

Tími:
Rannsóknin tekur um 20 mínútur.

Framkvæmd:

  • Fólk liggur á rannsóknabekk.
  • Filman er sett í skúffu undir rannsóknabekk.

Myndataka:
Teknar eru a.m.k. tvær myndir ein þar sem fólk liggur á bakinu og ein þar sem legið er á vinstri hlið. Stundum þarf að taka fleiri myndir.
Ath. að oftast eru teknar myndir af spjaldhrygg um leið og því eru yfirleitt teknar 4 myndir hið minnsta.

Aðrar upplýsingar:
Karlmenn geta hér fengið svokallað pungblý eða eins konar buddu sem sett er utanum punginn til að verja hann fyrir geislun. Erfiðara er að verja eggjastokka kvenna enda staðsetning þeirra ekki eins nákvæm og kynfæri karla. Geislavarnir felast í nákvæmum og réttum vinnubrögðum geislafræðingsins s.s. lágmarks stærð á geislafelti, stöðu fólks meðan myndað er og réttu vali á tökugildum. Gott er að verja brjóst kvenna með blýsvuntu.

Forðast skyldi að mynda barnshafandi konur nema brýna nauðsyn beri til. Velja skal hættuminni rannsókn ef kostur er á slíku.

www.rd.is