Röntgen Domus



Röntgenrannsóknir: Lærleggur


Undirbúningur:

Enginn.

Frábendingar:
Þungun.

Til athugunar:
Fjarlægja þarf allt sem skyggt getur á veika svæðið áður en myndað er.

Framkvæmd:

  • Fólk liggur á rannsóknabekk .
  • Veiki fóturinn liggur beinn en sjúklingur gerir sig vel innskeifan (snýr fæti alveg frá nára).
  • Sjúklingur beygir hné og leggur fótinn út til hliðar.
  • Geislafræðingur beinir röntgentæki að fætinum og afmarkar hæfilegt geislasvið.

Myndataka:
Teknar eru að minnsta kosti 2 myndir og oft fleiri.

Aðrar upplýsingar:
Karlmenn geta hér fengið svokallað pungblý eða eins konar buddu sem sett er utanum punginn til að verja hann fyrir geislun. Erfiðara er að verja eggjastokka kvenna enda staðsetning þeirra ekki eins nákvæm og kynfæri karla. Geislavarnir felast í nákvæmum og réttum vinnubrögðum geislafræðingsins s.s. lágmarks stærð á geislafelti, stöðu fólks meðan myndað er og réttu vali á tökugildum.

Forðast skyldi að mynda barnshafandi konur nem brýna nauðsyn beri til. Velja skal hættuminni rannsókn ef kostur er á slíku.

www.rd.is