
Enginn en fólk þarf að afklæðast öllu
nema nærbuxum og fær slopp eða bol til að vera í
meðan á rannsókn stendur.
Þungun.
Rannsóknin tekur 10 – 15 mínútur
- Legið er á bakinu stóran hluta rannsóknarinnar
og þarf fólk ekki að hreyfa sig neitt nema ef taka
á myndir af honum í standandi stöðu eða liggjandi
á hlið.
Að jafnaði eru teknar tvær myndir þar sem fólk
liggur á bakinu. Ein fyrir efri hluta kviðarhols og önnur
fyrir neðri hluta kviðarhols. Í sumum tilfellum þarf
að taka samskonar myndir þar sem fólk stendur og stundum
er tekin mynd af fólki liggjandi á hliðinni allt eftir
því eftir hverju er verið að leita.
Karlmenn geta hér fengið svokallað pungblý eða
eins konar buddu sem sett er utanum punginn til að verja hann fyrir
geislun. Erfiðara er að verja eggjastokka kvenna enda staðsetning
þeirra ekki eins nákvæm og kynfæri karla. Geislavarnir
felast í nákvæmum og réttum vinnubrögðum
geislafræðingsins s.s. lágmarks stærð á
geislafelti, stöðu fólks meðan myndað er og
réttu vali á tökugildum. Gott er að verja brjóst
kvenna með blýsvuntu þegar við á.
Forðast skyldi að mynda barnshafandi konur nema brýna
nauðsyn beri til. Velja skal hættuminni rannsókn ef
kostur er á slíku.
www.rd.is