Röntgen Domus



Röntgenrannsóknir: Arthrographia hné


Undirbúningur:

Enginn en fólk fer úr síðbuxum og fær slopp eða yfirbreiðslu meðan á rannsókn stendur.

Frábendingar:
Þungun.

Til athugunar:
Fjarlægja þarf allt sem skyggt getur á veika svæðið áður en myndað er.

Framkvæmd:

  • Teknar eru nokkrar yfirlitsmyndir.
  • Hnéð er sótthreinsað og sett undir sótthreinsaðan dúk sem ekki má snerta með berum höndum.
  • Röntgenlæknir stingur nál inní hnéliðinn og sprautar þar inn skuggaefni (litarefni) sem er sýnilegt á röntgenmynd.
  • Því næst er liðurinn smurður með efninu þannig að fólk réttir og beygir fótinn nokkrum sinnum.
  • Fóturinn er því næst vafinn þétt með bindi og myndaður frá öllum hliðum.
  • Bindið er losað og aftur tekur geislafræðingurinn myndir.

Myndataka:
Notast er við röntgengeisla og fóturinn jafnframt skoðaður í gegnumlýsingu.

Aðrar upplýsingar:

Rétt er að hlífa fætinum þann daginn sem rannsókn er gerð.

Ekki skyldi fara í sund eða baðkar strax eftir rannsóknina. Stungið hefur verið á liði og til að varast sýkingar er rétt að notast við sturtu þann daginn.

Blývörn er áföst við tækið og ver þannig viðkvæm svæði s.s. kynkirtla bæði karla og kvenna. Geislavarnir felast í nákvæmum og réttum vinnubrögðum geislafræðingsins og röntgenlæknisins s.s. lágmarks stærð á geislafelti, stöðu fólks meðan myndað er og réttu vali á tökugildum.

Forðast skal að mynda barnshafandi konur nema brýna nauðsyn beri til. Velja skal hættuminni rannsókn ef kostur er á slíku.

Fólki er óhætt að aka að rannsókn lokinni.

www.rd.is