Röntgen Domus



Röntgenrannsóknir: Hálshryggur


Undirbúningur:

Enginn.

Frábendingar:
Þungun.

Til athugunar:

Fjarlægja þarf fatnað og skartgripi af svæðinu sem á að mynda eða hvað annað sem skyggt gæti á. Eyrnalokka og falskar tennur þarf að fjarlægja.

Framkvæmd:

  • Fólk situr á stól eða stendur við rannsóknarplötuna.
  • Bakið er sett upp að plötunni.
  • Geislafræðingur beinir röntgentæki að hálsi og afmarkar hæfilegt geislasvið.

Myndataka:
Oftast eru teknar 5 myndir en þó aldrei færri en tværog stundum þarf að taka fleiri myndir.

Aðrar upplýsingar:

Geislavarnir felast í nákvæmum og réttum vinnubrögðum geislafræðingsins s.s. lágmarks stærð á geislafelti, stöðu fólks meðan myndað er og réttu vali á tökugildum.

Undantekningar frá þessu er þegar verið er að mynda börn. Börn skulu fá blývörn verði því við komið. Sömuleiðis skal verja barnshafandi konur.

Forðast skyldi að mynda barnshafandi konur nema brýna nauðsyn beri til. Velja skal hættuminni rannsókn ef kostur er á slíku.

www.rd.is