
Enginn en fólk þarf að fara úr að ofan og
fær slopp eða bol til að vera í meðan á
rannsókn stendur.
Þungun.
Fjarlægja þarf allt sem skyggt getur á veika svæðið
áður en myndað er.
Rannsóknin tekur um 10 mínútur.
- Fólk liggur á rannsóknabekk.
- Filman
er sett í skúffu undir rannsóknabekk.
Teknar eru a.m.k. tvær myndir ein þar sem fólk liggur
á bakinu og ein þar sem legið er á vinstri hlið.
Stundum þarf að taka fleiri
myndir.
Geislavarnir felast í nákvæmum og réttum
vinnubrögðum geislafræðingsins s.s. lágmarks
stærð á geislafelti, stöðu fólks meðan
myndað er og réttu vali á tökugildum. Gott er
að verja brjóst kvenna með blýsvuntu.
Forðast skyldi að mynda barnshafandi konur nema brýna
nauðsyn beri til. Velja skal hættuminni rannsókn ef
kostur er á slíku.