Röntgen Domus



Ómun:

Ómun eða hljóðbylgjutækni notar mekaniskar hreyfingar til að koma titringi á efni. Hljóðbylgjur ferðast mishratt í gegnum mismunandi efni. Heyranlegar bylgjur kallast sonic bylgjur og eru á tíðnisviðinu 20Hz – 20 KHz.

Ómun eða ultrasonic hljóðbylgjur eru ofan heyranlegra marka eða 2 - 15 MHz. Þegar hljóðbylgjur fara úr einu efni í annað endurkastast þær að hluta og halda áfram í gegn að hluta til.

Endurkastið fer eftir efninu sem bylgjan lendir á. Því harðara og þéttara sem efnið er því minna fer í gegn.

Við ómskoðun er hlustað eftir endurkastinu og endurkastið er í beinu hlutfalli við eðlisþyngd þess efnis sem bylgjan lendir á og út frá styrk endurkastsins má meta á hverju bylgjan lenti.

Við ómskoðanir er notast við svo kallaðan ómhaus sem er einskonar "transducer" sem inniheldur bæði hljóðnema og sendi.

Loft:
Loft leiðir hljóðbylgju miklu hægar en vatn og lífrænn vefur. Þess vegna er ekki hægt að framkvæma ómskoðun þegar loft er nálægt. T.d. er ekki hægt að skoða lungu með ómskoðun. Notað er gel milli ómhauss og húðar af sömu ástæðu. Loks má nefna að loft í meltingarvegi getur torveldað rannsókn töluvert.

Til þess að minnka loft í meltingarvegi er óskað eftir að fólk sé fastandi a.m.k. 4 klst. fyrir rannsókn.

Doppler áhrif:
Doppler áhrif sem eiga sér stað í hljóðbylgjum notast til að skoða eitthvað sem er á hreyfingu s.s. blóðflæði í æðum.

Doppler áhrifunum má líkja við tón sem hækkar þegar það sem endurvarpar hljóbylgju er á hreyfingu á móti manni og lækkar þegar hreyfingin er í gagnstæða átt. Sem dæmi má nefna bíl. Hljóðið frá bílnum hefur hærri tón þegar bíllinn keyrir í áttina að manni en tónninn lækkar þegar hann keyrir framhjá og fjarlægist. Því meiri sem hreyfingin er því meiri munur verður á hljóðinu sem við sendum inn og því sem við fáum til baka. Því minni sem hreyfingin er því minni verður mismunurinn. Ef engin hreyfing á sér stað fæst engin tíðnibreyting(0 Hz).

Rannskóknin sjálf:
Sjúklingur liggur á bekk og ómhausnum er rennt eftir líkamanum. Gel er sett á milli húðarinnar og ómhaussins til að hindra að loft trufli myndgerðina.

Ómskoðun er algerlega sársauka og hættulaus.

www.rd.is