Röntgen Domus



Ómskoðun: Þvagblaðra


Undirbúningur:

Þvagblaðran þarf að vera full og fólk þarf að fara úr að ofan.

Frábendingar:
Engar.

Til athugunar:
Rannsóknin tekur um 10 - 20 mínútur.

Framkvæmd:

  • Fólk liggur á rannsóknabekk. Sett er gel á húðina og ómhausnum sem er lítið apparat er rennt yfir kviðinn. Rannsóknin er sársaukalaus.

Ómun sýnir:

  • Stærð og lögun þvagblöðru.
  • Separ og fyrirferðir í og við þvagblöðru.
  • blöðruhálskirtil hjá körlum.
  • Steina.
  • Diverticuli (hliðarpoka).
www.rd.is