Röntgen Domus



Ómskoðun: Nýru


Undirbúningur:

Enginn en fólk þarf að fara úr að ofan.

Frábendingar:
Engar.

Til athugunar:
Rannsóknin tekur um 10-20 mín.

Framkvæmd:

  • Fólk liggur á rannsóknabekk. Sett er gel á húðina og ómhausnum sem er lítið apparat er rennt yfir kviðinn. Rannsóknin er sársaukalaus.

Ómun af nýrum sýnir helst:

  • Stærð, lögun og staðsetningu nýrnanna.
  • Áverkamerki.
  • Fyrirferðir og steina.
  • Þenslu á safnkerfi nýrna.
  • Blóðflæði í nýrum (með Doppler rannsókn).
  • Ástand eftir nýrnaígræðslu.
www.rd.is