Röntgen Domus



Ómskoðun: Lifur


Undirbúningur:

Fasta a.m.k. 4 klst. fyrir rannsókn. Fólk þarf að fara úr að ofan.

Frábendingar:
Engar.

Til athugunar:
Rannsóknin tekur um 10-20 mín.

Framkvæmd:

  • Sjúklingur liggur á rannsóknabekk. Sett er gel á kviðinn og ómhausnum sem er lítið apparat er rennt yfir kviðinn. Rannsóknin er sársaukalaus.

Ómun af lifur sýnir helst:

  • Stærð, lögun og ómgerð lifrar.
  • Fyrirferðir og kalkanir í og við lifur.
  • Áverkamerki.
  • Gallgangakerfi.
  • Æðakerfi lifrarinnar (með Doppler rannsókn).
www.rd.is