Röntgen Domus



Ómskoðun: Gallblaðra


Undirbúningur:

Fasta þarf í a.m.k. 4 klst. fyrir rannsóknina til að minnka truflun frá lofti í meltingarveginum og til þess að fá góða gallblöðrifyllingu. Fólk þarf að fara úr að ofan og draga buxurnar aðeins niður.

Frábendingar:
Engar.

Til athugunar:
Rannsóknin tekur um 10-20 mín.

Framkvæmd:

  • Sjúklingur liggur á rannsóknabekk. Sett er gel á kviðinn og ómtækinu, sem er lítið apparat, er rennt yfir kviðinn. Rannsóknin er sársaukalaus.

Ómun af gallblöðru sýnir helst:

  • St ærð og lögun gallblöðru.
  • Steina í gallblöru.
  • Sepa og fyrirferðir í gallblöðruvegg og xxlögð gallblaðra.
  • Merki um gallblöðrubólgu.
  • Þenslu á gallblöðru og / eða gallvegum.
www.rd.is