Röntgen Domus



Ómskoðun: Bris


Undirbúningur:

Enginn en fólk þarf að fasta a.m.k. 4 klst fyrir rannsókn og klæða sig úr að ofan.

Frábendingar:
Engar.

Til athugunar:

Rannsóknin tekur um 10 - 20 mínútur.

Framkvæmd:

  • Fólk liggur á rannsóknabekk. Sett er gel á húðina og ómhausnum sem er lítið apparat er rennt yfir kviðinn. Rannsóknin er sársaukalaus.

Ómun sýnir helst:

  • Stærð, lögun og ómgerð kirtilsins.
  • Fyrirferðir í eða við kirtilinn.
  • Brisbólgur.
  • Þenslu á brisgangakerfi.
www.rd.is