Allir sem koma í segulómrannsókn eru spurðir spurninga eftir því sem við á, og svör eru skráð í bókunarkerfi Röntgen Domus.
Sömu reglur gilda fyrir aðstandendur ef sjúklingur þarf fylgd í rannsókn. Rannsóknin er útskýrð
í aðalatriðum.
Vegna þess hve segulsvið tækisins er sterkt er nauðsynlegt
að fjarlægja alla segulnæma hluti svo sem úr,
skartgripi, smáaura, lykla, hárspennur og greiðslukort.
Fólk þarf að fara úr eigin
fötum og í sjúklingaslopp.
Fjarlægja þarf augnfarða.
Ef
grunur leikur á aðskotahlut s.s. málmflís er tekin
röntgenmynd því til staðfestingar.
Engar nema ef vera kynnu segulnæmir málmhlutir í
eða á fólki.
Segulsviðið hefur engin skaðleg áhrif og telst hættulaust.
Þó þarf að virða nokkrar öryggisreglur
vegna segulsviðsins. Nauðsynlegt er að vita hvort fólk
hafi:
- Hjartagangráð
- Áður farið í skurðaðgerð
- Fengið málmflís í auga eða annars
staðar í líkamann
- Húðflúr
Rannsóknin tekur um 1/2 til 1 klst.
- Fólk leggst útaf á rannsóknabekk.
- Fyrst
er settur viðeigandi yfirborðssegull við þann
líkamshluta sem mynda á.
- Því næst er fólki sett inní segulómtækið
og veiki líkamshlutinn þarf að vera í miðjum
seglinum.
- Þá hefst
myndatakan.
Fólk liggur með veika líkamshlutann í miðjum
seglinum og á að hafa það nokkuð notalegt meðan
á myndatöku stendur.
Segulómun er algjörlega sársaukalaus og sá
kostur fylgir að ekki eru notaðir neinir hættulegir orkumiklir
geislar. Einu óþægindin eru að fólk þarf
að liggja í tiltölulega þröngu rými
og nokkur hávaði er í segulómtækinu.
Myndir verða til með notkunsegulsviðs og útvarpsbylgna.
Fólki er komið fyrir inni í seglinum og útvarpsbylgjur
eru sendar inní líkamann. Líkaminn endurkastar
síðan frá sér útvarsbylgjunum á
sömu tíðni. Næmt loftnet sem umlykur fólk
nemur þessar bylgjur og öflugur tölvubúnaður
býr til myndir úr endurkastinu.
Athugið að greiðslukort
og úr geta orðið
fyrir áhrifum frá sterku segulsviðinu og
eyðilagst.
Því er afar mikilvægt að losa sig við allt
slíkt áður en komið er inná rannsóknastofuna.
Það er
sérstaklega mikilvægt að fólk
sé alveg kyrrt meðan á myndatöku stendur
sem er ein ástæða þess að erfitt
getur verið
að mynda börn en myndataka af þessu tagi tekur
langan tíma og ein smá hreyfing getur eyðilagt
heila myndröð.
ATH!
Ekki er æskilegt að rannsaka barnshafandi konur fyrstu
3 mánuði meðgöngu þó svo að aldrei
hafi verið sýnt fram á skaðleg áhrif rannsóknarinnar
á fóstur.
Ekki
eru þekktir neinir fylgikvillar eða aukaverkanir eftir
rannsóknina.
Eins
og við allar aðrar rannsóknir er skrifleg
niðurstaða
segulómunarinnar send til þess læknis sem
rannsóknarbeiðnina
skrifaði.
Ekki
er víst að börn nái inní miðjan
segulinn og verður þá að mynda þau í
stóra tækinu. Þetta á sérstaklega
við
myndatökur af olnboga og hné.
www.rd.is