Röntgen Domus



Segulómun: Hryggur

Undirbúningur:
Allir sem koma í segulómrannsókn eru spurðir spurninga eftir því sem við á, og svör eru skráð í bókunarkerfi Röntgen Domus.
Sömu reglur gilda fyrir aðstandendur ef sjúklingur þarf fylgd í rannsókn. Rannsóknin er útskýrð í aðalatriðum.

Vegna þess hve segulsvið tækisins er sterkt er nauðsynlegt að fjarlægja alla segulnæma hluti svo sem úr, skartgripi, smáaura, lykla, hárspennur og greiðslukort.

Fólk þarf að fara úr eigin fötum og í sjúklingaslopp.
Fjarlægja þarf augnfarða.


Ef grunur leikur á aðskotahlut s.s. málmflís er tekin röntgenmynd því til staðfestingar.

Frábendingar:

Engar nema ef vera kynnu segulnæmir málmhlutir í eða á fólki
Segulsviðið hefur engin skaðleg áhrif og telst hættulaust. Þó þarf að virða nokkrar öryggisreglur vegna segulsviðsins.

Nauðsynlegt er að vita hvort fólk hafi:

  • Hjartagangráð
  • Áður farið í skurðaðgerð
  • Fengið málmflís í auga eða annars staðar í líkamann
  • Húðflúr

Tími:
Rannsóknin tekur um 1/2 - 1 klst.

Framkvæmd:

  • Fólk leggst útaf á rannsóknabekk.
  • Fyrst settur viðeigandi yfirborðssegull við þann líkamshluta sem mynda á.
  • Því næst er fólki sett inní segulómtækið og veiki líkamshlutinn þarf að vera í miðjum seglinum.
  • Þá hefst myndatakan og henni getur fylgt mikill hávaði.
  • Fólk fær ýmist eyrnatappa til að útiloka hávaðann eða útvarp yfir eyrun til að hlutsta á.

Innstilling:
Fólk liggur með hrygginn í miðjum seglinum og á að hafa það nokkuð notalegt meðan á myndatöku stendur.

Segulómun er algjörlega sársaukalaus og sá kostur fylgir að ekki eru notaðir neinir hættulegir orkumiklir geislar. Einu óþægindin eru að fólk þarf að liggja í tiltölulega þröngu rými og nokkur hávaði er í segulómtækinu.

Myndataka:

Myndir verða til með notkunsegulsviðs og útvarpsbylgna. Fólki er komið fyrir inni í seglinum og útvarpsbylgjur eru sendar inní líkamann. Líkaminn endurkastar síðan frá sér útvarsbylgjunum á sömu tíðni. Næmt loftnet sem umlykur fólk nemur þessar bylgjur og öflugur tölvubúnaður býr til myndir úr endurkastinu.

Aðrar upplýsingar:
Athugið að greiðslukort og úr geta orðið fyrir áhrifum frá sterku segulsviðinu og eyðilagst. Því er afar mikilvægt að losa sig við allt slíkt áður en komið er inná rannsóknastofuna.

Það er sérstaklega mikilvægt að fólk sé alveg kyrrt meðan á myndatöku stendur sem er ein ástæða þess að erfitt getur verið að mynda börn en myndataka af þessu tagi tekur langan tíma og ein smá hreyfing getur eyðilagt heila myndröð.

ATH! Ekki er æskilegt að rannsaka barnshafandi konur fyrstu 3 mánuði meðgöngu þó svo að aldrei hafi verið sýnt fram á skaðleg áhrif rannsóknarinnar á fóstur.


Ekki eru þekktir neinir fylgikvillar eða aukaverkanir eftir rannsóknina.

Eins og við allar aðrar rannsóknir er skrifleg niðurstaða segulómunarinnar send til þess læknis sem rannsóknarbeiðnina skrifaði.

www.rd.is