Röntgen Domus



Ísótóparannsóknir: Skjaldkirtilsskann

Undirbúningur:
Fólk má ekki vera á lyfjum sem blokkera skjaldkirtilinn (hormónin T3 og T4).

Frábendingar:
Nýlegar skuggaefnisrannsóknir geta truflað. Best að bíða í 3 - 4 vikur.
Skjalkirtilslyf.

Til athugunar:
Myndataka tekur 20 mínútur auk þess sem 15 mínútur þurfa að líða frá því sprautað er að myndatöku = 35-40 mínútur. Sé ekki búið að ómskoða viðkomandi hér er það gert.

Efni:
222 MBq, hreint Tc99m.

Framkvæmd:

  • sprautað
  • 15 mínútum eftir sprautu er byrjað að mynda. 3 myndir (4 mín hver) með mismunandi halla.
  • ef taka á mynd með merkingu er það fjórða myndin (mark) og tekur hún 2 mínútur.
  • sprautustaður er myndaður í lokin og tekur það 10 sekúndur.

Innstilling:
Fólk liggur á baki með púða eða handklæði undir hálsi og höfuð sveigt aftur svo það rétti vel úr hálsi.

Ekki ætti að kyngja munnvatni meðan verið er að mynda.

Aðrar upplýsingar:

Ef skjaldkirtill er ekki kominn í ljós eftir 20 mínútur, skal taka eina mynd með lengdum tíma (6 mín.) og ráðfæra sig síðan við lækni um framhaldið.

www.rd.is