Röntgen Domus



Ísótóparannsóknir: Lasix Nýrnaskann


Undirbúningur:
Fólk skal fasta í fjóra tíma og drekka vel.

Frábendingar:
Engar. En hafi fólk farið í rannsókn þar sem joð innihaldandi skuggaefni hefur verið gefið í æð er best að fresta rannsókn til næsta dags.

Til athugunar:
Fólk skal vera búið að drekka 500-700 ml. af vatni ½ klst fyrir rannsókn og vera nýbúið að tæma þvagblöðru þegar rannsókn hefst. Skrá þarf hæð og þyngd.

Tími:
Rannsóknin tekur u.þ.b. klukkutíma.

Efni:
185 MBq , Tc 99-m / DTPA Pentetate II.

Framkvæmd:

  • Sett upp nál.
  • Fólki stillt inn og það tengt við sprautu með ísótóp.
  • Myndataka hefst og sprautað er 10 sek. seinna.
  • IV. Þegar myndatakan hefur gengið í 18 mínútur ( 19 mín. eftir af keyrslu) er gefið lasix (1.0 mg/kg, mest 20 mg) en myndataka er ekki stöðvuð, haldið áfram þar til programm er búið.

Innstilling:
Fólk liggur á baki. Myndir eru teknar aftanfrá. Ef fólk hefur farið í nýrnaígræðslu eru teknar myndir framanfrá.

Aðrar upplýsingar:
Skrá þarf hæð og þyngd svo hægt sé að gera viðeigandi útreikninga á starfsemi nýrnanna.

Bolus: Unnið er með lítið magn af efni (<1 ml.) og því er mikilvægt að skola efninu öllu inn í æðakerfið í einu (bolus).

Mikilvægt er að fólk sé vel vökvað fyrir þessa rannsókn. Ef það erþað ekki skal setja upp vökva í æð sérstaklega hjá börnum.

Afar mikilvægt er að fólk hreyfi sig ekki meðan á rannsókn stendur.

Helmingunartími þvagútskilnaðar er fundinn með aðstoð tölvu (má þó nálgast gróft án hennar).

Ef T1/2 er 10 mínútur eða minna er ekki um rennslishindrun að ræða. Ef T1/2 er yfir 20 mínútur þá er rennslishindrun til staðar.

Milli 10. og 20. mínútu er svæði þar sem greiningin er óviss.

www.rd.is