Röntgen Domus



Ísótóparannsóknir: Nýrnaskann


Undirbúningur:

Sjúklingur skal fasta í fjóra tíma og drekka vel.

Frábendingar:
Engar.

Til athugunar:
Fólk þarf að vera búið að drekka 500-700 ml af vatni ½ klst fyrir rannsókn og vera nýbúið að tæma þvagblöðru þegar rannsókn hefst. Skrá þarf hæð og þyngd.

Tími:
Rannsókn tekur u.þ.b. 30 mínútur.

Efni:
185 MBq, Tc 99-m / DTPA Pentetate II.

Framkvæmd:

  • Settt upp nál í bláæð.
  • Fólki stillt inn og tengt við sprautu með geislavirku efni.
  • Myndataka hafin og sprautað 10 sek. seinna.

Innstilling:
Fólk liggur á baki. Myndir eru teknar aftanfrá. ATH. vegna útreikninga má ekki hreyfa bekkinn sem legið er á eftir að myndataka hefst.
Ef fólk hefur farið í nýrnaígræðslu eru teknar myndir framanfrá.

Aðrar upplýsingar:
Skrá þarf hæð og þyngd fólks svo hægt sé að gera viðeigandi útreikninga á starfsemi nýrnanna.

Ef spurning er um (hydronephrosu) afrennslishindrun skal gera ráð fyrir Lasix skanni - sjá leiðbeiningar um Nýrnaskann með Lasix.

Dreifing – Tc-99m DTPA er skilið út í nýrum með glomerúlar filtration og er ekki enduruppsogað og er því nokkuð góður mælikvarði á GFR (glomerular filtration rate), nema hvað 5 -10% eru bundin próteinum í blóðplasma. Eftir 4 tíma hafa yfir 90% skilist út í þvagið.

Gangur eðlilegs DTPA skanns - Ef inndælingin heppnast vel þá sést virkni í abdominal aorta eftir 5 sek. og 1 sek. Mesta virkni í nýrunum er síðan milli 3. og 5. mín. og virkni í þvagleiðurum eða blöðru sést á 5. mín. Virknin í nýrunum helmingast síðan á 8 -10 mín. fresti.

Myndað er framanfrá eftir nýrnaígræðslu.

Eðlilegt GFR er 110 –150.

www.rd.is