Röntgen Domus



Ísótóparannsóknir: Mjólkurskann


Undirbúningur:

Fasta í 2 - 4 klst. eða eins langan tíma og venjulega líður milli máltíða.

Frábendingar:
Nýleg barium rannsókn og annar orkuhár ísótópur sem enn er í líkamanum, t.d. Gallium.

Tími:
Rannsóknin tekur u.þ.b. 30 mínútur.

Efni:
Tc99m Sulfur Colloid 37 MBq blandað í 120 ml. af mjólk eða það sem barnið drekkur venjulega.

Framkvæmd:

  • Efnið er gefið í pela og þarf að klárast á ca. 10 mínútum. Ef það gengur ekki þarf að setja niður sondu.
  • Byrjað er að taka myndir strax eftir gjöf.

Innstilling:
Barnið liggur á bakinu og myndir eru teknar aftanfrá.

Því næst er tekin ein mynd af kviðarholi (frá þind niður að lífbeini) myndavélin undir borðinu og barnið liggjandi á grúfu einni klst. eftir að gjöf lauk.

Svo er aftur tekin mynd eins og í lið 2 tveimur klst. eftir að gjöf lauk.
Nú má barnið borða ef vill.

Fá barnið aftur 4-5 klst. eftir að gjöf lauk og taka nú eina 60 sek. mynd af brjósti (thorax) framanfrá og aðra eins aftanfrá.

www.rd.is