Röntgen Domus



Ísótóparannsóknir: Heilaskann


Undirbúningur:
Athugið hvort fólk geti legið kyrr í 15 - 30 mínútur, en ekki má gefa róandi lyf fyrr en eftir inngjöf á geislavirka efninu (ceretec).

Frábendingar:
Engar.

Tími:
Alltaf eru bókaðir tveir í einu og lagt er til að báðir séu sprautaðir áður en byrjað er að mynda. Myndatakan tekur u.þ.b. 20 mínútur auk þess sem seinni sjúklingur þarf að bíða meðan sá fyrri er myndaður.

Efni:
740 MBq , Tc 99-m / Ceretec .
Athugið að blandan er útrunnin eftir 30 mínútur og þess vegna þarf að sprauta alla sem koma til myndatöku samtímis.

Innstilling:
Fólk leggst með höfuð í statív og slakar öxlum vel niður.

Aðrar upplýsingar:
Gott er að fólk sé látið veraí ró og næði góða stund áður en sprautað er.

SPECT. Single photon emission - computed tomografi: byggir á sama grunni og tölvusneiðmyndir nema hér koma geislarnir útúr sjúklingnum í allar áttir en eru ekki sendir í gegnum hann.

Gammamyndavélin fer 180° – 360° umhverfis fólk og tekur mælingar undir ákveðnum hornum og síðan býr tölvukerfið til sneiðmyndir.

Hver mynd tekur langan tíma. Fólk verður því að vera lengi kyrrt.

Með þessari tækni má auka upplausn/sundurgreiningu þannig að allt að 8 mm. meinsemdir sjáist.

Tækjakostur er dýr og hver rannsókn tímafrek.

SPECT er helst notað til að skoða vafasvæði en einnig hentar þessi rannsóknarmáti vel til að gera heilaskönn og hjartaskönn. Í heila og hjartaskönnum hefur SPECT ótvíræða kosti.

Heilaskann er gert með Tc-99 merktu Ceretec (Tc99mHM-PAO).

Ceretec fer yfir Blood-brain barrier.

Með þessari tækni má greina heiladrep fyrr en með nokkurri annarri aðferð. Einnig má sýna fram á staðbundna óeðlilega heilastarfsemi hjá fólki með krampa og Alzheimers, svo dæmi séu tekin, jafnvel þó CT og MRI rannsóknir séu eðlilegar.

Heilaskanni má skipta í eftirfarandi þrjá hluta:

  • Blóðflæðishluta: Myndir teknar í 60 sek (2-3 sek. hver mynd).
  • Mjúkvefjahluta: Hefst strax að loknum blóðflæðishluta.
  • Heilahluta: Hefst 1-2 klst. eftir inndælingu.
www.rd.is