Röntgen Domus



Ísótóparannsóknir: Gallvegaskann


Undirbúningur:

Fasta í 4 - 6 klst.

Frábendingar:
Barium í görnum og annar ísótópur í líkamanum.
Bilirubin í blóðvökva sem er hærra en 20 mg/dl veldur mjög lélegri virkni lifrarfrumanna (hepatocyta).

Ef sjúklingur er á morfíni eða líkum lyfjum verður oft spasmi í sphincter of Oddi og seinkuð tæming á gallgangi út í garnir.

Tími:
Rannsóknin tekur 1 - 4 klst.

Efni:
Tc 99-m BRIDATEC
1,11 MBq / kg. Max 148 MBq ef bilirubin er hækkað.

Framkvæmd:

  • Sett upp nál í vinstri handlegg.
  • Byrjað að mynda og svo er efninu sprautað í bláæð.
  • Gefinn er 1-11/2 dl rjómi.
  • Aftur teknar myndir.

Innstilling:
Sjúklingur liggur á baki og myndirnar eru teknar framanfrá.
Ef gallblaðra sést ekki eftir 60 mínútur þarf að taka myndir aftur seinna.

Aðrar upplýsingar:
Algengast er að teknar eru stakar myndir og svokallaðar dynamiskar myndir. Hver stök mynd tekur þrjár mínútur og er heildartími rannsóknarinnar 60 mínútur. Á þessum 60 mínútum á að sjást virkni í gallgöngum (eftir 15 - 20 mín.), gallblöðru (eftir 20 - 30 mín.), og smágirni (eftir 35 - 45 mín.).

Ef góð fylling kemur fyrr fram þá má hætta rannsókn á 48. mínútu.

Ef gallblaðra sést ekki á 60 mínútna myndinni ákveður röntgenlæknir framhaldið.

Ef gallblaðra sést en ekki virkni í smágirni einni klst. eftir inndælingu má gefa fitumáltíð eða cholecystokinin í æð og taka síðan mynd 20 mínútum síðar. Með þessu móti má meta samdráttarhæfni gallblöðrunnar.

Ef erfiðlega gengur að greina milli virkni í gallblöðru annars vegar og skeifugarnar hins vegar hjálpar stundum að gefa vatn að drekka.

Hafi sjúklingur verið lengi fastandi og með næringu í æð er oft gefið cholecystokinin í æð (0.02 microgr./kg) 20 mínútum fyrir rannsókn. Ef þetta er gert þá eru einungis teknar myndir í 2 klst.

Sjáist virkni í görnum á 50. – 60. mínútu en ekki í gallblöðru má gefa morfín í æð (0.04 mg/kg). Efnið er gefið á 3 mínútum og myndir teknar í 20 - 30 mínútur í viðbót.

Skann telst óeðlilegt ef:

  • Virkni í görnum sést ekki fyrr en eftir 15 mínútur.
  • Áberandi virkni er í choledoccus og intrahepatískum göngum.
  • Minna en 50% fall er í virkni í CBD frá 30. til 60. mínútu.
  • Að virkni í CBD er x3 virknin í lifur á sextugustu mínútu . Þrír af hverjum fjórum nægja til greiningar.
  • Spinder of Oddi disfunction, tumor eða steinar í CBD.
  • Senda sjúkling í ERCP
www.rd.is