Röntgen Domus



Ísótóparannsóknir: Nýru Captropil baseline skann


Undirbúningur:

  • Sjúklingur skal fasta í fjóra tíma og drekka vel.
  • Ef sjúklingur er á ACE blokkerum (Captopril , Enalapril, Lisinopril eða sambærilegum lyfjum) á að hætta notkun fjórum dögum fyrir rannsókn.

Frábendingar:
Engar.

Til athugunar:
Sjúklingur skal vera búinn að drekka 500-700 ml. af vatni ½ klst fyrir rannsókn og vera nýbúinn að tæma þvagblöðru þegar rannsókn hefst. Skrá þarf hæð og þyngd sjúklings.

Tími:
Rannsókn tekur u.þ.b. 30 mín. (myndataka í 20 mín.)

Efni:
185 MBq Tc 99-m / DTPA Pentetate II.

Framkvæmd:

  • Sett upp nál.
  • Sjúklingi stillt inn og sprauta tengd við nálina.
  • Myndataka hafin og geislavirka efninu sprautað inn 10 sek. seinna.

Innstilling:
Sjúklingur liggur á baki. Myndir teknar aftanfrá. Ef sjúklingur hefur farið í nýrnaígræðslu eru teknar myndir framanfrá.

www.rd.is