Röntgen Domus



Ísótóparannsóknir og brjóstagjöf


Geislun frá foreldri se
m hefur fengið geislavirkt efni vegna myndrannsóknar er lítil. Þó er rétt að gera fólki grein fyrir því að hægt er að minnka geislun á barn með því að barn sé ekki löngum stundum í fangi foreldris daginn sem foreldrið undirgengst rannsókn.

Leiðbeiningar (úr Radiation Protection 100, European Commission) miða við að geislun á ungabarn fari ekki yfir 1 mSv (sbr. viðmiðunargildi fyrir almenning).

Ekki er nauðsynlegt að gera hlé á brjóstagjöf vegna eftirfarandi geislaefna:

  • 99mTc-DTPA 99mTc-diphophonates (beinaskönn)
  • 99mTc-DMSA 99mTc-HMPAO (heilaspect)
  • 99mTc-HIDA

Nærvera móður við gjöf veldur geislaálagi, en ekki geislaefni í mjólkinni. Það er því til bóta að móðir mjólki sig og annar gefi pelann. Hér er um litla geislun að ræða og taka verður vellíðan barns með í reikninginn.

Þegar gefið er hreint pertechnetat fer það eftir magni hve langt hlé þarf að gera:

  • 800 MBq 99mTc-pertechnetate; 47 klukkustunda hlé.
  • 80 MBq 99mTc-pertechnetate; 25 klukkustunda hlé.
  • 100 MBq 99mTc-MAA; 13 klukkustunda hlé.

Þegar gert er hlé á brjóstagjöf þarf að tæma mjólkina úr brjóstunum a.m.k. einu sinni áður en gjöf er hafin á ný.

Meðganga. Til fróðleiks:
Geislaskammtar á fóstur (fetal equivaletn dose) við ísótóparannsóknir
(úr Radiation Protection 100, European Commission)

Ísótóparannsóknir
fetal equivaletn dose, mSv

Rannsókn Miðgildi Hæsta gildi
99mTc-beinaskann
3,3
4,6
99mTc-DTPA
1,4
4,0
99mTc-skjaldkirtill
0,7
1,6


www.rd.is