Röntgen Domus



Ísótóparannsóknir: Beinaskann


Undirbúningur:
Enginn.

Frábendingar:
Truflandi fyrri rannsóknir eru nýlegar baríum rannsóknir og annar orkuhár ísótópur sem enn er í líkamanum.

Til athugunar:
Gott er að drekka vel fyrsta klukkutímann eftir inngjöf efnisins og tæma blöðruna sem oftast. Tæma þarf blöðruna rétt áður en byrjað er að mynda. Megin myndatakan fer fram 3 tímum eftir inndælingu.

Tími:
Fyrri koma: tekur 5-20 mínútur. Þá er geislavirka efninu sprautað í bláæð og í sumum tilfellum eru teknar myndir strax en slíkt tekur aðeins nokkrar mínútur.

Seinni koma:
Tekur 20-40 mínútur. Þá er tekin mynd af öllum líkamanum ogí sumum tilfellum eru teknar sérmyndir af einstökum líkamshlutum í framhaldinu.

Aðrar upplýsingar:

Algengur ”heitur” myndgalli er þvagmengun utan á sjúklingi eða í fötum hans. Slíkt verður að þvo í burtu og endurtaka myndina.

Algengur ”kaldur” myndgalli á beinaskanni er vegna málmhluta á eða í sjúklingi s.s. lyklar, smámynt og gerfiliðir.

Alla lausa málmhluti verður að fjarlægja úr vösum fyrir myndatökuna svo ekki komi fram slíkar eyður á myndunum.

www.rd.is