Röntgen Domus



Tölvusneiðmyndun: Nýru - Urography (IVU)

Undirbúningur:

Setja þarf upp nál í handlegg áður en rannsóknin hefst.
Þeir sem taka sykursýkislyfið Glucophage þurfa að hætta því í 48 klst. í kjölfar skuggaefnisinndælingar.

Frábendingar:
Ólétta og ofnæmi fyrir skuggaefni.

Tími:
Rannsóknin tekur um 10-20 mínútur.

Innstilling:

Sjúklingur liggur á baki með hendur upp fyrir höfuð og hann er tengdur við sjálfvirka sprautu sem dælir inn skuggaefni í æðakerfið.

Framkvæmd:

  • Þegar sjúklingur er lagstur er hann skilinn eftir inni á rannsóknastofunni. Bekkurinn sem legið er á fer þá að hreyfast og nokkur hávaði heyrist frá tölvusneiðmyndatækinu sjálfu um leið og myndiatakan fer í gang. Þá er mikilvægt að fólk hreyfi sig ekkert og haldi andanum.
  • Í gegnum hátalarakerfi fær sjúklingur leiðbeiningar um öndun og er jafnframt látinn vita þegar skuggefnisinndælingin hefst.

Aðrar upplýsingar:
Rannsóknabekkurinn hreyfist stundum nokkuð hratt og stundum bara örlítið í einu.Þessar rannsóknir eru alltaf teknar í útöndun og þá er afar mikilvægt að reyna að halda jafnri öndun.

Skuggefninu er dælt inn hratt og örugglega og við það getur fólki hitnað nokkuð skyndilega. Hitinn er þá mestur frá brjósti og niður í grind og sumum líður eins og þeir séu að pissa á sig. Þessi tilfinning er alveg eðlileg og líður hratt hjá.

www.rd.is