Röntgen Domus



KviðurTölvusneiðmyndun: Kviður


Undirbúningur:

Setja þarf upp nál í handlegg áður en rannsóknin hefst.
Stundum þurfa sjúklingar að drekka vatn 15 mín. fyrir rannsókn eða bariumblöndu ýmist 500 ml á hálftíma eða 1 lítra á klukkutíma.
Þeir sem taka sykursýkislyfið Glucophage þurfa að hætta því í 48 klst. í kjölfar skuggaefnisinndælingar.

Leiðbeiningar um drykkju á bariumblöndu:

Ekki er nauðsynlegt að vera fastandi þegar byrjað er að drekka skuggaefnið.

Blandaður drykkur er 900 ml.

  • Drekkið 2 glös klukkutíma fyrir rannsókn
  • Drekkið 1 glas 45 mínútum fyrir rannsókn
  • Drekkið 1 glas hálftíma fyrir rannsókn
  • Drekkið 1 glas 15 mínútum fyrir rannsókn

Komið með afganginn til að drekka rétt fyrir rannsóknina.
Bariumblöndun og drykkja


Frábendingar:
Ólétta og ef gefa á skuggaefni þá er ofnæmi fyrir skuggaefni og sykursýkislyfið (Glucophage) frábending.

Tími:
Rannsóknin tekur um 10-20 mínútur.

Innstilling:

Sjúklingur liggur á baki með hendur upp fyrir höfuð og hann er tengdur við sjálfvirka sprautu sem dælir inn skuggaefni í æðakerfið.

Framkvæmd:

  • Þegar sjúklingur er lagstur er hann skilinn eftir inni á rannsóknastofunni. Bekkurinn sem legið er á fer þá að hreyfast og nokkur hávaði heyrist frá tölvusneiðmyndatækinu sjálfu um leið og myndiatakan fer í gang. Þá er mikilvægt að fólk hreyfi sig ekkert og haldi andanum.
  • Í gegnum hátalarakerfi fær sjúklingur leiðbeiningar um öndun og er jafnframt látinn vita þegar skuggefnisinndælingin hefst.

Aðrar upplýsingar:
Rannsóknabekkurinn hreyfist stundum nokkuð hratt og stundum bara örlítið í einu.Þessar rannsóknir eru alltaf teknar í útöndun og þá er afar mikilvægt að reyna að halda jafnri öndun.

Skuggefninu er dælt inn hratt og örugglega og við það getur fólki hitnað nokkuð skyndilega. Hitinn er þá mestur frá brjósti og niður í grind og sumum líður eins og þeir séu að pissa á sig. Þessi tilfinning er alveg eðlileg og líður hratt hjá.

Viðbrögð við bariumskuggaefni eru óþekkt en mikilvægt er að drekka vel af vökva til að koma í veg fyrir hægðatregðu.

Rannsóknir framkvæmdar með þessum hætti eru t.d.:

  • Allur kviður
  • Lifur
  • Bris
  • Nýru (nema steinaleit þá er ekki skuggaefni og engin drykkja fyrir rannsókn)
  • Nýrnahettur
  • Grindarbotn

 

www.rd.is