Röntgen Domus



KransæðarTölvusneiðmyndun: Kransæðar

Undirbúningur:

Setja þarf upp nál í handlegg áður en rannsóknin hefst og einnig þarf að tengja sjúkling við hjartalínurit. Þeir sem taka sykursýkislyfið Glucophage þurfa að hætta
því í 48 klst. í kjölfar skuggaefnisinndælingar.

Frábendingar:
Þungun.

Tími:
Rannsóknin tekur 30 - 40 mínútur.

Innstilling:
Sjúklingur liggur á baki með hendur upp fyrir höfuð og hann er tengdur við sjálfvirka sprautu sem dælir inn skuggaefni í æðakerfið. Hann er einnig tengdur við hjartalínurit.

Framkvæmd:

  • Geislafræðingur útskýrir jafn óðum gang rannsóknarinnar. Sjúklingur þarf að liggja alveg grafkyrr, og í nokkur skipti þarf hann að halda niðri andanum.
  • Bekkurinn sem legið er á hreyfist fram og til baka. Sjúklingur fær leiðbeiningar um öndun í gegn um hátalarakerfi og er jafnframt látinn vita þegar skuggefnisinndælingin hefst.

Aðrar upplýsingar:
Sjúklingur þarf að halda andanum í allt að 30 sekúndur. Áður en rannsókn hefst kannar geislafræðingur hvað sjúklingur getur haldið andanum lengi og greinir vandlega frá hvers ætlast er til á meðan á rannsókn stendur.

Skuggefninu er dælt inn hratt og örugglega og við það getur fólki hitnað nokkuð skyndilega. Hitinn er þá mestur frá brjósti og niður í grind og sumum líður eins og þeir séu að pissa á sig. Þessi tilfinning er alveg eðlileg og líður hratt hjá.

www.rd.is