Röntgen Domus



Tölvusneiðmyndun: Hryggur


Undirbúningur:

Enginn.

Frábendingar:
Engar.

Tími:

Rannsóknin tekur um 10-20 mínútur.

Innstilling:
Sjúklingur liggur á baki með hendur upp fyrir höfuð. Fætur eru hafðir uppá stórum kodda svo hryggurinn hvíli í sem bestri stöðu og dregur jafnframt úr lendhryggjarsveigjunni.

Framkvæmd:

  • Þegar sjúklingur er lagstur er hann skilinn eftir inni á rannsóknastofunni. Bekkurinn sem legið er á fer þá að hreyfast og nokkur hávaði heyrist frá tölvusneiðmyndatækinu sjálfu um leið og myndiatakan fer í gang. Þá er mikilvægt að fólk hreyfi sig ekkert.

Aðrar upplýsingar:
Rannsóknabekkurinn hreyfist stundum nokkuð hratt og stundum bara örlítið í einu. Í sumum tilfellum þarf að halla tækinu sem umlykur sjúklinginn.

Rannsóknir framkvæmdar með þessum hætti eru:

  • Beinþéttnimæling
  • Brjósthryggur
  • Lendhryggur
  • Spjaldliðir
www.rd.is