Röntgen Domus



Tölvusneiðmyndun: Háls


Undirbúningur:

Enginn nema stundum þarf að setja upp nál í handlegg.
Þeir sem taka sykursýkislyfið Glucophage þurfa að hætta því í 48 klst. í kjölfar skuggaefnisinndælingar.

Frábendingar:
Þungun og ef gefa á skuggaefni þá er ofnæmi fyrir skuggaefni frábending.

Tími:
Rannsóknin tekur um 10-20 mínútur.

Innstilling:
Fólk liggur á baki með höfuðið vel skorðað. Gott er ef hægt er að lyfta hökunni aðeins upp. Handleggir eru hafðir niður með síðum.

Framkvæmd:

  • Þegar fólk er lagst er það skilið eftir inni á rannsóknastofunni. Bekkurinn sem legið er á fer þá að hreyfast og nokkur hávaði heyrist frá tölvusneiðmyndatækinu sjálfu um leið og myndatakan fer í gang. Þá er mikilvægt að fólk hreyfi sig ekkert.

Aðrar upplýsingar:
Rannsóknabekkurinn hreyfist stundum nokkuð hratt og stundum bara örlítið í einu.

www.rd.is