Segulómun háls er gerð til að skoða mjúkvefi á hálsi eða barkakýli (larynx). Hálshryggur er oft skoðaður og lesa má um það hér.
Undirbúningur: Enginn, nema stundum þarf að setja upp nál í handlegg ef gefa á skuggaefni. Þú færð eyrnatappa vegna hávaða í tækinu.
Tími: Rannsóknin tekur 20-45 mín.
Innstilling: Þú liggur á bakinu með höfuðið ofan í sérstakri höfuðstoð. Loftnet (grind) er sett yfir höfuðið og haft á meðan á rannsókn stendur. Þú liggur með hendur niður með hliðum eða ofan á bringu og ef þú vilt færðu teppi.
Framkvæmd: Mikilvægt er að þú liggir grafkyrr allan tímann meðan á rannsókn stendur. Teknar eru nokkrar myndraðir sem taka 1-7 mínútur hver. Bekkurinn gæti færst örlítið til á milli myndraða. Ef þú færð skuggaefni í æð er því sprautað inn í miðri rannsókninni. Þú finnur ekkert fyrir því.